Karfan þín er tóm

VR Fyrirtæki ársins 2017

fimmtudagur, 18. maí 2017

Johan Rönning hefur verið valið Fyrirtæki ársins 2017 í árlegri vinnumarkaðskönnun VR sem kynnt fimmtudaginn 18. maí síðastliðinn

Johan Rönning er Fyrirtæki ársins 2017 í hópi stórra fyrirtækja og er það sjötta árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þennan titil. Að þessu sinni voru fimm efstu fyrirtækin í hverjum flokki sem hlutu nafnbótina Fyrirtæki ársins  og var Johan Rönning eitt af þeim.


Heildareinkunn Rönning er 4,56 af 5 mögulegum sem er svipuð einkunn og á síðasta ári. Meðaltal stærri fyrirtækja er 4,13. Rönning fær 4,82 fyrir ímynd fyrirtækis (Meðaleinkunn: 4,22), 4,72 fyrir jafnrétti (Meðaleinkunn: 4,23), 4,67 fyrir ánægju og stolt (Meðaleinkunn: 4,27), 4,66 fyrir starfsanda (Meðaleinkunn: 4,35),  ásamt því að skora 4,59 fyrir stjórnun (Meðaleinkunn: 4,13).

Johan Rönning var einnig fyrirtæki ársins á árunum 2012 - 2016 ásamt því að vera í öðru sæti árið 2011 og hástökkvari ársins 2010.

Starfsmenn Johan Rönning bera þessa heiðruðu nafnbót með miklu stolti og munu áfram vinna að því að gera fyrirmyndarfyrirtækið Johan Rönning enn betra.