Karfan þín er tóm

Vinna við stækkun á Akureyri hafin

mánudagur, 14. ágúst 2017

Búið er að taka grunn að stækkun verslunar Johan Rönning á Akureyri.

Viðbyggingin sem verður tæpir 500 fermetrar að stærð verður kærkomin viðbót við útibúið sem fyrir löngu hefur sprengt utan af sér núverandi húsnæði.

Áætlað er að viðbyggingin verði komin í notkun öðru hvoru megin við áramót.