Karfan þín er tóm

Viðurkenning frá Creditinfo

fimmtudagur, 15. nóvember 2018

Creditinfo hefur unnið ítarlega greiningu sem sýnir rekstur hvaða íslensku fyrirtækja telst til fyrirmyndar, en að þessu sinni voru það 859 fyrirtæki sem stóðust styrkleikamat Creditinfo og teljast því vera Framúrskarandi fyrirtæki 2018.

Aftur hlýtur Johan Rönning þessa viðurkenningu og erum við ákaflega stolt af því að vera meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem standast kröfur Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki.