Karfan þín er tóm

Verkfæradagar 2015

miðvikudagur, 19. ágúst 2015

Johan Rönning býður glæsilegt úrval handverkfæra frá þýsku verkfæraframleiðendunum Cimco og Phoenix Contact sem sérhæfa sig í verkfærum fyrir rafvirkja. Einnig höfum við í sölu handmælitæki frá Benning sem eru þekkt fyrir gæðavöru á frábæru verði.

Sérstakir tilboðsdagar verða 19 - 31. ágúst á handverkfærum og handmælitækjum frá Cimco, Benning og Phoenix Contact sem bjóðast þá með 40% afslætti.

Þar sem vefsíðan sýnir verð fyrir hvern og einn viðskiptavin þá mun afsláttur á þessum vörum ekki birtast viðskiptavinum á síðunni en afslættinum er bætt við eftir að pöntun er stofnuð innan kerfis hjá okkur, þannig geta menn verslað óhikað í gegnum vefinn og afslátturinn mun skila sér á endanlegum reikning.

Hægt er að skoða verkfærin frá þessum framleiðendum (og öðrum) með því að smella hér.