Karfan þín er tóm

Takk fyrir okkur kæru gestir!

fimmtudagur, 8. desember 2016

Það er klassísk jólahefð hjá Johan Rönning að bjóða rafvirkjum upp á hangikjötsveislu í byrjun desember og er árið í ár enginn undantekning.

Enn eitt árið settum við nýtt met í fjölda heimsókna til okkar, að þessu sinni snæddu yfir 1.075 manns hjá okkur hangikjöt með uppstúfi, grænum baunum og rauðkáli ásamt laufabrauði og Malti & Appelsíni.

Við hjá Johan Rönning erum hrærð yfir þessum gríðalega góðu móttökum á viðburði okkar og viljum þakka viðskiptavinum okkar kærlega fyrir um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og megi aðventan vera ykkur sem ánægjulegust.