Karfan þín er tóm

Stoppu stuð Orkusölunar

föstudagur, 4. nóvember 2016

Orkusalan mun á næstu dögum hefja dreifingu á áttatíu hleðslutækjum fyrir rafbíla frá Johan Rönning í öll sveitafélög landsins. Þetta er stærsta einstaka sala hleðslutækja hér á landi. Hleðslutækin sem Orkusalan valdi eru sterkbyggð nettengjanleg 20 kW EVLINK tæki frá Schneider Electric.

Hleðslutækin hafa öll kortalesara svo mögulegt er að aðgangstýra þeim eða aflstýra ef nægjanleg orka er ekki fyrir hendi á uppsetningarstað. Nánari upplýsingar um tækin er að finna hér. Tækin hafa verið færð í stíl Orkusölunnar og ættu ekki að fara framhjá rafbílaeigendum. Við óskum Orkusölunni og rafbílaeigendum innilega til hamingju með áfangann.