Karfan þín er tóm

Snjallbox í Klettagörðum

miðvikudagur, 31. janúar 2024

Nú bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á þá nýjung að geta sótt smærri pantanir í snjallbox sem sett hefur verið upp hjá inngang við starfsstöð okkar í Klettagörðum í Reykjavík.

Viðskiptavinur fær sent SMS og tölvupóst þegar varan er komin í snjallboxið og hefur þá 3 daga til að sækja vöruna þangað. Hægt er að sækja sendinguna í snjallboxið allan sólarhringinn.
Ferlið er einfalt og fljótlegt.

  • Þú skannar strikamerki í lesaranum eða slærð inn kóða
  • Snjallboxið opnast og þú tekur pöntunina
  • Þú lokar snjallboxinu aftur