Karfan þín er tóm

Nýtt á lager: Deyfir fyrir LED-ljós

föstudagur, 8. janúar 2016

Höfum tekið á lager deyfi frá ABB til að laga ýmis vandamál sem tengjast LED-ljósum. Deyfinn má til dæmis nota til að koma í veg fyrir sjálfræsingu spar- eða LED pera. Hann kemur einnig í veg fyrir eftirljóma þegar slökkt hefur verið á lágspenntum halógen eða LED perum, sem getur myndast vegna gáruspennu eða í tengslum við þrýstiljósdeyfa án núlltengingar.

Deyfirinn dregur úr suði eða brúmmi í rafeindaspennum sem tengjast ljósdeyfum, hvort sem er snúnings- eða þrýstideyfum án núlls. Hann fjarlægir einnig gáruspennu á stýrilínum fyrir gardínurofa sem stýra fleiri en einum gardínumótor.

Deyfirinn er að þvermáli 22 mm og lengd er 25 mm. Lengd tengivíra er 235 mm.

Hægt er að skoða deyfinn nánar hér.