Karfan þín er tóm

Nýtt á lager - ABB töfluskápar

miðvikudagur, 30. nóvember 2016

Johan Rönning mun frá og með deginum í dag hefja sölu á töfluskápum frá ABB. Þetta eru sterkbyggðir skápar sem eru einfaldir í samsetningu. Mikið úrval fylgihluta er í boði svo sem töflueiningar, núll- og jarðskinnur ásamt safnskinnukerfum.
Skáparnir eru boðnir í nokkrum útfærslum. Má þar nefna UK-greiniskápa, A-veggskápa og Twinline gólfskápa, hægt er að skoða þessar vörur hér.

Samhliða sölu á ABB-töfluskápum hefur Johan Rönning gefið út veglegan 140 blaðsíðna vörulista á íslensku með myndum, vörunúmerum og ítarlegum tæknilegum upplýsingum um íhluti skápanna. Hvort sem þig vantar yfirlit yfir stærðir skápa, einingar inn í þá eða skinnukerfi í öflugan gólfskáp þá eru allar upplýsingar hér á einum stað. Vörulistann má nálgast hér.