Karfan þín er tóm

Nýr opnunartími Johan Rönning

mánudagur, 23. mars 2015

Johan Rönning Klettagörðum hefur frá miðjum janúar opnað klukkan 7:30 á morgnanna og því er opnunartími Klettagarða frá 7:30 - 17:00 alla virka daga. Um er að ræða enn eitt skrefið í að auka þjónustu viðskiptavina, sem hingað til hafa geta nýtt sér þennan opnunartíma í útibúum Johan Rönning í Hafnarfirði, Selfossi og Reykjanesbæ.

Viðskiptavinir hafa tekið sérlega vel í þessa nýbreytni. Um er að ræða alla hefðbundna þjónustu og opnar skiptiborð Johan Rönning ennfremur á þessum tíma með númerið 5 200 800. Sölumenn Johan Rönning taka glaðir í bragði á móti árrisulum viðskiptavinum. Viðskiptavinir geta ennfremur pantað vörur deginum áður, sótt klukkan 07:30 og nýtt tækifærið að koma sér á verkstað áður en morgunumferð höfuðborgarsvæðisins tekur völdin. Það er von starfsmanna Johan Rönning að þessu þjónustuviðbót geti nýst viðskiptavinum til hins betra.