Karfan þín er tóm

Nýr opnunartími á Akureyri

fimmtudagur, 2. júlí 2015

Johan Rönning á Akureyri mun frá og með 1. júlí opna klukkan 7.30 á morgnana og verður því opnunartími á Akureyri frá 7.30 - 17.00 alla virka daga. Um er að ræða enn eitt skrefið í að auka þjónustu við viðskiptavini.

Sölumenn Johan Rönning munu taka glaðir í bragði á móti árrisulum viðskiptavinum. Þeir geta ennfremur pantað vörur deginum áður, sótt klukkan 07.30 og nýtt tækifærið að koma sér snemma á verkstað.

Það er von starfsmanna Johan Rönning á Akureyri að þessi þjónustuviðbót geti nýst viðskiptavinum til hins betra.

Nánar má skoða um verslun Johan Rönning á Akureyri hérna