Karfan þín er tóm

Ný Volvo atvinnubifreið í útakstur

miðvikudagur, 3. janúar 2018

Nú hefur bæst nýtt og stórglæsilegt tæki í hóp atvinnubifreiða okkar. 2018 árgerð af Volvo FH sem verður notaður í útakstur með pantanir til viðskiptavina okkar

Við minnum á að Johan Rönning býður viðskiptavinum upp á að fá vörurnar heimsendar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Akureyri og í Fjarðarbyggð á opnunartíma útibúa. Ennfremur er hægt að fá vörur afhentar á öllum afgreiðslustöðum Póstsins, Flytjanda og Landflutninga.


Afhending innan höfuðborgarsvæðisins miðast við innan tveggja tíma og eftir samkomulagi í öðrum útibúum. Hægt er að fá sérbíl sendan með hraði, sé afhendingin áríðandi.