Karfan þín er tóm
 

Tækniupplýsingar:

Lagerstaða:
  • Reykjavík
    Til á lager

Upplýsingar um vöru

Vörunúmer: 1510683

Móttakari til að stýra opnun og lokun á gluggum, reyklúgum og birturistum, frá WindowMaster. Tekur á móti merkjum frá WSK Thermokon-sendum í rofa og fjarstýringu og er tengjanlegur við allar WindowMaster stjórneiningar og reykstýringar.
Mismunandi forgangur er á stýringunni, merki frá hefðbundnum WSK Thermokon-sendum og fjarstýringum hefur lægri forgang en merki frá reykskynjurum og reykstýringum.
Móttakarinn getur tekið á móti tíu eins merkjum þannig að hægt er að tengja allt að tíu rofa/fjarstýringar við hann. Ef að notuð er fleiri en ein gerð af merki þá verður að nota tvo móttakara.

Mögulegt er að stilla hvernig móttakarinn stýrir opnun/lokun/stopp á þrjá mismunandi vegu:

Stilling 1 (sjálfgefin):

Þrýst lengi á rofa: Opnar/lokar samkvæmt forstilltum tíma eða þangað til þrýst er á stöðvunarrofa.
Þrýst stutt á rofa: Lokar.

Stilling: 2:

Þrýst stutt á rofa: Opnar/lokar samkvæmt forstilltum tíma eða þangað til þrýst er á stöðvunarrofa.
Þrýst stutt á rofa: Lokar.

Stilling 3:

Opnar/lokar á meðan rofa er þrýst niður, þó ekki lengur en forstilltur tími leyfir.