Karfan þín er tóm

Light+Building 2024

miðvikudagur, 31. janúar 2024

Venju samkvæmt verða starfsmenn Johan Rönning á Light+Building sýningunni í Frankfurt sem fer fram dagana 3. – 8. mars. Þriðjudaginn 5. mars munum við vera á sýningarsvæðum valinna birgja og bjóðum þig sérstaklega velkominn til að skoða vöruúrval þeirra. Líkt og á öðrum sýningum munum við bjóða viðskiptavinum Johan Rönning í skemmtilega óvissuferð um kvöldið.

Vinsamlegast skráið þátttöku sem fyrst með því að senda póst á helgig@ronning.is því takmarkað sætaframboð er í boði. Dagskrá dagsins verður send út þegar nær dregur.