Johan Rönning býður nýja lausn í soðnum tengingum á jarðskautum eða „Exothermic Welding“, frá spænska framleiðandanum Aplicaciones Tecnológicas. Um er að ræða nýjung að því leyti að „púðrið“ kemur í föstum töflum. Töflurnar eru ónæmar fyrir raka og skammtastærðir eru valdar með að setja eina eða fleiri töflur í mótið.
Einnig býður þessi framleiðandi upp á lausnir í eldingavörnum og vöktunarkerfi bæði fyrir jarðskaut og eldingarvara.
Til þess að kynna þetta betur langar okkur til að bjóða þér á kynningu í Klettagörðum 25. Við verðum með nokkrar tímasetningar í boði 1. og 2. mars næstkomandi. Veldu þér tímasetningu hér fyrir neðan til að skrá þig:
Frekari upplýsingar veita:
Sveinn Rúnar Júlíusson sveinnr@ronning.is
Guðni K. Elíasson ge@ronning.is