Karfan þín er tóm

Kaiser Elektro

fimmtudagur, 20. nóvember 2014

Johan Rönning býður Kaiser Elektro frá Þýskalandi velkomið í hóp þeirra fjölmörgu og áreiðanlegu framleiðenda sem félagið býður upp á. Kaiser sem valið hefur Johan Rönning sem umboðsaðila sinn á Íslandi, er þekktur framleiðandi á vönduðum og áræðanlegum vörum sem rafiðnaðarmenn hér á landi þekkja vel. Má þar nefna box fyrir innfellda lampa í steinsteypu og niðurtekin loft, hljóðeinangrandi, loftþéttar eða geislavarðar rofadósir svo eitthvað sé nefnt.

Kaiser framleiðir einnig fjöldan allan af áhugaverðum vörum sem við munum kynna viðskiptavinum okkar á næstu vikum. Viðskiptavinir Johan Rönning geta nú þegar nálgast vörur frá Kaiser í útibúum félagsins um allt land.

Við viljum að lokum benda á vörulista Kaiser sem má nálgast hér, Youtube-rás Kaiser sem inniheldur mörg myndbönd um notkun Kaiser búnaðar sem og heimasíðu Kaiser.