Karfan þín er tóm

Johan Rönning Fyrirtæki ársins 2013

föstudagur, 14. mars 2014

Johan Rönning hefur verið valið fyrirtæki ársins 2013 í árlegri vinnumarkaðskönnun VR sem fram fór föstudaginn 24.maí síðastliðinn.

Fyrirtækjum í könnun VR er skipt í þrjá flokka eftir stærð. Johan Rönning bar sigur úr býtum í flokki fyrirtækja þar sem starfsmenn eru fimmtíu eða fleiri. Fyrirtækið fékk 4,620 í heildareinkunn af 5 mögulegum og er það hæsta heildareinkunn sem fyrirtæki í þessum stærðarflokki hefur fengið. Johan Rönning var einnig fyrirtæki ársins árið 2012, í öðru sæti árið 2011 og hástökkvari ársins 2010. Meðaleinkunn stórra fyrirtækja í ár er 4,040.

Starfsmenn Johan Rönning bera þessa heiðruðu nafnbót með miklu stolti og munu áfram vinna að því að gera fyrirmyndarfyrirtækið Johan Rönning enn betra.

Allar nánari upplýsingar um könnunina og niðurstöður er hægt að finna hér.

Myndin hér að ofan er tekin við tilefnið af nokkrum starfsmönnum félagsins ásamt Ólafíu Björk Rafnsdóttir formanni VR, hér fyrir neðan má svo sjá nokkrar myndir af starfsmönnum félagsins sem að voru teknar af þessu tilefni.