Karfan þín er tóm

Hleðslustöð fyrir rafbíla við Klettagarða

mánudagur, 14. ágúst 2017

Sett hefur verið upp hleðslustöð fyrir rafbíla við verslun okkar í Klettagörðum.

Stöðin sem er tvöföld 22 kW stöð frá Schneider Electric er ætluð viðskiptavinum Johan Rönning sem komnir eru á rafbíl. Þessi gerð hleðslustöðva hentar sérlega vel fyrir fyrirtæki sem vilja bjóða viðskiptavinum og eða starfsfólki upp á hleðslu fyrir rafbíla. Hún hefur inn byggðan RFID-kortalesara og getur því lesið flestar gerðir slíkra korta.

Stöðin er sú fyrsta sem sett er upp við verslanir Johan Rönning en ekki sú síðasta.