Karfan þín er tóm

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020

föstudagur, 16. október 2020

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020

Johan Rönning ehf. er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2020 en tæplega 3% fyrirtækja landsins komast á þann lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar að uppfylltum skilyrðum um tekjur, eiginfjárhlutfall og rekstrarafkomu.

Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast ríflega 1.100 fyrirtæki á listann.

Við erum stolt af þessari viðurkenningu og hún hvetur okkur áfram í að gera enn betur.

Undir Johan Rönning ehf. eru verslanir Johan Rönning, S. Guðjónsson, Sindra, Sindra Vinnufata og Vatn & veitur.