Karfan þín er tóm

Fjölbraut fær KNX-rafbúnað

fimmtudagur, 16. júlí 2015

Afhending KNXJohan Rönning og Berker færðu Fjölbrautaskólanum í Breiðholti veglega gjöf á vordögum sem gagnast við forritunarkennslu á KNX-búnaði fyrir hússtjórnarkerfi. Í pakkanum eru 6 sett af Quicklink-búnaði sem hvert um sig getur unnið sem þráðlaust sjálfstætt starfandi kerfi eða tengjanlegt við KNX-kerfi.

Quicklink frá Berker má tengja við síma og tölvur. Á myndinni má sjá Ásgeir Kristinsson verkefnastjóra hjá Johan Rönning afhenda Helga Reimarssyni kennara rafiðna og Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara gjöfina.

Hér fyrir neðan má sjá myndband um búnaðinn