Nú er hægt að stofna pöntun með hraði á vefnum. Hægt er að hlaða upp Excel skjali með mörgum vörunúmerum og færast þá vörurnar í körfuna.
NÁNARNú er hægt að stofna efnishandbók á vefnum.
Hægt er að setja vörur á óskalista og stofna pdf efnishandbók úr listanum.
Nú er hægt að skoða alla reikninga á vefnum.
Ekki er lengur þörf á innskráningu á sérstakan reikningavef til að skoða reikninga.
Skiptiborð
Opið alla virka daga
Kistan er full af sniðugum verkfærum fyrir rafvirkja
Innskráður notandi:
Johan Rönning óskar eftir að ráða þjónustulundaðan, metnaðarfullan og harðduglegan söluráðgjafa á lýsingarsviði í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Klettagörðum í Reykjavík.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfsumhverfi.
Johan Rönning var stofnað árið 1933 og er hluti af Fagkaup sem rekur jafnframt verslunar- og þjónustufyrirtækin Sindra, Vatn og veitur, S. Guðjónsson og Áltak.
Hjá Johan Rönning starfa um 160 starfsmenn í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, á Grundartanga, Selfossi og Akureyri.
Höfuðstöðvar félagsins eru að Klettagörðum 25 í Reykjavík.
Johan Rönning hlaut nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2020 og var það í 10 skiptið sem Johan Rönning hlýtur þessa nafnbót sem starfsmenn bera með miklu stolti.
Johan Rönning starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta við viðskiptavini
- Tilboðsgerð og ráðgjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mikil þjónustulund
- Reynsla og þekking á lýsingarbúnaði
- Menntun og reynsla í rafiðnaði er kostur
- Frumkvæði
- Samskiptahæfni
- Góð enskukunnátta
- Lausnamiðaður hugsunarháttur
- Reynsla af sölustörfum er kostur
Upplýsingar um starfið veitir Helgi Guðlaugsson í síma 5200800 eða helgig@ronning.is
Hægt að sækja um starfið á vefsíðu Alfreðs - Alfreð.is
Þessi síða notar vafrakökur (e: cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar