Karfan þín er tóm

Er kraftur í þér?

fimmtudagur, 24. september 2020

Johan Rönning óskar eftir að ráða þjónustulundaðan, metnaðarfullan og harðduglegan söluráðgjafa í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Klettagörðum í Reykjavík.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfsumhverfi.

Johan Rönning var stofnað árið 1933 og er hluti af Fagkaup sem rekur jafnframt verslunar- og þjónustufyrirtækin Sindra, Vatn og veitur, S. Guðjónsson og Áltak.
Hjá Johan Rönning starfa um 160 starfsmenn í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, á Grundartanga, Selfossi og Akureyri.
Höfuðstöðvar félagsins eru að Klettagörðum 25 í Reykjavík.

Johan Rönning hlaut nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2020 og var það í 10 skiptið sem Johan Rönning hlýtur þessa nafnbót sem starfsmenn bera með miklu stolti.

Johan Rönning starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Sala og þjónusta við viðskiptavini

- Tilboðsgerð og ráðgjöf

Menntunar- og hæfniskröfur

- Mikil þjónustulund

- Frumkvæði

- Samskiptahæfni

- Reynsla af sölustörfum er kostur

- Lausnamiðaður hugsunarháttur

- Góð enskukunnátta

- Menntun og reynsla í rafiðnaði

Upplýsingar um starfið veitir Helgi Guðlaugsson í síma 5200800 eða helgig@ronning.is

Hægt að sækja um starfið á vefsíðu Alfreðs - Alfreð.is