Ný ljós frá Unilamp

Vorum að fá á lager innfelld ljós frá Unilamp. Ljósin eru aðeins 36mm á dýpt og þurfa því ekki mikla niðurtekt á lofti. Þau eru að sjálfsögðu dimmanleg og koma sex saman í kassa. Hægt er að fá þau í tveimur litum, hvít og svört.

Nánari upplýsingar um ljósin má finna á vefsíðu okkar þar sem þú getur einnig verslað þau.

Gyro Go! Hvít:      3236550
Gyro Go! Svört:    3236554

Prufupinni frá Megger
Megger er stór framleiðandi af mælum og höfum við flutt inn mikið af sérhæfðum mælum og mælitækjum frá þeim. Nú höfum við fengið á lager prufupinna frá þeim.

Svona pinna þekkja flestir rafvirkjar og er frábært að hafa einn slíkann við hendina. Hann skynjar 12-1000V og sýnir hann rautt ljós, gefur frá sér hljóð og titrar þegar hann skynjar spennu. Einnig er í pinnanum handhægt vasaljós.

Prufupinnann má nálgast á vefsíðu okkar Rönning.is
Stafræn ráðstefna hjá Steinel
Stafrænar ráðstefnur hafa færst í aukana síðast liðið ár og eru væntanlega komnar til að vera. Nú eru félagar okkar í Steinel með fyrirlestra 9 til 11 mars. Steinel bjóða uppá ljósalausnir með hreyfi- og viðveruskynjurunum fyrir stór rými eins og t.d.sameignir o.fl.

Virkilega spennandi framleiðandi sem vert er að kynna sér nánar. Upplýsingar um dagskrána og skráningu er að finna hér: https://dialogdays.com/en/
Bitaklemmmur

Við eigum til mikið úrval af bitaklemmum frá Walraven. Sérstaklega langar okkur að benda á þessa fjölnotaklemmu sem hægt er að nota til að festa ýmislegt við járnbita. Frábært er að eiga svona klemmu í töskunni því hún getur leyst úr mörgum vandamálum.

Skoðaðu úrvalið af bitaklemmum á vefsíðu okkar Rönning.is

Kapalkefli

Kefli óskast! - Lumar þú á tómum keflum?

Við viljum vekja athygli viðskiptavina okkar á því að við tökum vel á móti keflum sem eru allt að 1m í þvermál og þá sérstaklega smærri plastkeflum.

Við hvetjum alla sem eiga slík að koma þeim til okkar í næsta útibú Johan Rönning þar sem þau geta átt framhaldslíf.

UPS varaaflgjafar

Við getum útvegað allar stærðir og gerðir UPS varaaflgjafa frá ABB.

ABB sérhæfir sig í búnaði fyrir afldreifingu, orkufrekan iðnað, stýringar og sjálfsvirkjun. Lína þeirra í UPS varaaflgjöfum er orðinn mjög fjölhæf og er ABB þekkt fyrir að framleiða gæða vörur. Til eru nokkrar UPS vörulínur sem að henta mismunandi uppsetningum og aflstærðum, allt frá minni uppsetningu upp í stóriðnað.

PowerValue lína ABB eru UPS varaaflgjafar á hagstæðu verði hugsaðir fyrir minni uppsetningar upp í meðalstórar. Aflstærðir eru alveg frá 600VA og upp í 20kVA eftir týpum. Bæði er hægt að fá frístandandi sem og tölvuskápa einingar innan PowerValue línanna. 

Powervalue 11 LI UP og PRO eru ódýrir frístandandi USP varaaflgjafar sem henta í litlar uppsetningar og eru stærðir þeirra 600VA upp í 2kVA. Mynd af þeim er hér að neðan.

Einnig erum við að selja rafhlöður fyrir UPSa. Ef þið þurfið að uppfæra rafhlöður í eldri uppsetningu eða þurfið einfaldlega rafhlöður í aðrar þarfir þá getið þið verið í bandi við okkur

Endilega verið í sambandi við Birgi Inga til forvitnast meira um vöruúrvalið í póstfangið birgirj@ronning.is.  

Frír akstur í mars
Í mars mun Johan Rönning bjóða áfram frían akstur á pöntunum yfir 10.000 kr!

Við byrjuðum að bjóða uppá þetta þegar samkomutakmarkanir voru hertar og hafa viðtökurnar verið framar vonum og höfum við því ákveðið að framlengja þessu út mars.

Frír akstur er í boði til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu eða á þjónustustöð flutningsaðila fyrir viðskiptavini á landsbyggðinni.

Við minnum á að auðvelt er að panta vörur í vefverslun okkar á Rönning.is

Þú pantar og við sendum!
Facebook Facebook
Rönning.is Rönning.is
Email Email
Johan Rönning | Klettagörðum 25, 104 Reykjavík | s. 5 200 800

Verslanir okkar