Breytistykki fyrir tjaldsvæði
Við viljum benda á að við eigum á lager "tjaldsvæðaskott" frá AS Schwabe. Núna eru allir að sækja ferðavagnana úr vetrargeymslu og standsetja fyrir sumarið. Mælum með að þið komið við í einhverju af útibúum hjá okkur og grípið skottið með fyrir ykkur og vinina. 

Einnig má kynna sér breytistykkið á vef okkar Rönning.is
Fyrirlestrar hjá LAPP
Þann 11 og 12 maí næstkomandi eru þau hjá LAPP með fyrirlestra á netinu undir nafninu "LAPP Experience". Þar munu sérfræðingar þeirra fara yfir þær lausnir sem í boði eru. Aðgangur er frír og dagskráin er spennandi þannig að það er vert er að kynna sér þetta nánar.

Hægt er að kynna sér dagskrána og skrá sig á heimasíðu LAPP.
Sveinsprófskassar

Nú er tími sveinsprófanna að koma og viljum minna á sveinsprófs-kassana okkar vinsælu. Þar getur þú keypt í einum pakka allt sem þig vantar fyrir verklega prófið og skilað því svo aftur eftir prófið. Þetta hefur verið gríðalega vinsælt hjá okkur svo endilega settu þig í samband við okkur ef þig vantar kassa.

Nýtt sólúr frá Hager
Hager hefur sent frá sér nýtt og uppfært sólúr. Það er núna með Bluetooth innbyggt og eru allar stillingar gerðar í gegnum smáforrit (app) í síma. Hægt er að fá sólúrið einna eða tveggja rása en einnar rásar útfærslan tekur einungis eitt bil (modul)

Smáforritið sem notað er til að setja sólúrið upp heitir "Hager Mood" og er fáanlegt bæði fyrir Apple og Android síma. Ef stýrikerfið styður íslensku þá fer smáforritið einnig á íslensku.

Tímarofi/Sólúr Bluetooth 1 rása
Tímarofi/Sólúr Bluetooth 2 rása

 
Er sumarbústaðurinn klár?
Nú er sumarið að ganga í garð og ætlum við að vera dugleg að ferðast innanlands eins og í fyrrasumar. Það er því ljóst að sumarbústaðir landsins verða vel nýttir í sumar og munu einhverjir nýta tímann og fara í framkvæmdir.

Er kominn tíma á þilofnana, setja gólfhita á baðherbergið eða koma upp geislahitara á pallinn? Renndu við hjá okkur eða kíktu á það sem við höfum uppá að bjóða á heimasíðunni okkar Rönning.is 
Steinel ljós
RS PRO Connect lampar frá Steinel eru stafrænir og stórsniðugir. Þeir eru stillanlegir þráðlaust með smáforriti í gegnum Bluetooth.

Lamparnir eru samtengjanlegir á sáraeinfaldan hátt, auðveldir í uppsetningu og hægt að raða í samverkandi hópa óháð víringu. Einungis þarf að ákvarða einn leiðtoga hvers afmarkaðs hóps og forrita þann lampa. Sá lampi stýrir síðan öllum völdum undirsátum eins.

4 lýsingaraðgerðir:
Grunnljósstig (stillanlegt 10-50%).
Baklýsing
Deyfanlegt aðalljós (föst deyfing 50-100%)
Neyðarljós sem aukabúnaður. 2000 lm.

Ljósin eru með hárnákvæman hátíðniskynjara með 10m skynsvið (79m²). Tímastilling (5s-60m) og birtustilling (2-2000lux).

Lampana má finna á Rönning.is
RS PRO Connect R10 m/hreyfisk
RS PRO Connect R20 m/hreyfisk
Rakaþéttur lampi 4200lm m/hr.
 
230V LED borðar
Við höfum tekið á lager LED borða frá SLC sem eru 230V og þurfa því ekki spennubreyti. Borðarnir eru IP65 og koma í þremur lengdum, 10m, 25m og 50m. Þeir eru fljótlegir í uppsetningu, hægt er að festa þá upp með klemmum eða setja í állista. Hægt er að velja um þrjú litarhitastig. 2700K, 3000K og 4000K.

Borðana má kynna sér nánar á vefsíðu okkar Rönning.is
Fagkaup kolefnisjafnar reksturinn
Fagkaup ehf, móðurfélag Johan Rönning, hefur mótað sér heildstæða stefnu í sjálfbærni. Umhverfisstefna félagsins er til 10 ára og er það markmið stefnunnar að skilgreina þau sjálfbærnimarkmið sem Fagkaup hefur sett sér og leggja fram aðgerðir sem tryggja að þeim markmiðum verði náð.

Félagið hefur gert samning við Klappir Grænar lausnir ehf. til að ná mælanlegum árangri í umhverfismálum og málum tengdum sjálfbærni. Fyrsta samfélagsuppgjör félagsins kom út í febrúar 2021, kolefnisfótspor Fagkaupa 2020 var 948,8 CO2 tonn og hefur félagið fjárfest í kolefnisbindingu hjá Kolviði til að jafna út áhrif rekstursins á umhverfið.

Kolviður mun gróðursetja 9.448 tré í sumar til að jafna út kolefnisfótsporið.

Hægt er að kynna sér umhverfisstefnu Fagkaupa á vef okkar hér.
Kapalkefli

Kefli óskast! - Lumar þú á tómum keflum?

Við viljum vekja athygli viðskiptavina okkar á því að við tökum vel á móti keflum sem eru allt að 1m í þvermál og þá sérstaklega smærri plastkeflum.

Við hvetjum alla sem eiga slík að koma þeim til okkar í næsta útibú Johan Rönning þar sem þau geta átt framhaldslíf.

Frír akstur í maí
Í maí mun Johan Rönning bjóða áfram frían akstur á pöntunum yfir 10.000 kr!

Við byrjuðum að bjóða uppá þetta þegar samkomutakmarkanir voru hertar og hafa viðtökurnar verið framar vonum og höfum við því ákveðið að framlengja þessu út apríl.

Frír akstur er í boði til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu eða á þjónustustöð flutningsaðila fyrir viðskiptavini á landsbyggðinni.

Við minnum á að auðvelt er að panta vörur í vefverslun okkar á Rönning.is

Þú pantar og við sendum!
Facebook Facebook
Rönning.is Rönning.is
Email Email
Johan Rönning | Klettagörðum 25, 104 Reykjavík | s. 5 200 800

Verslanir okkar