Fyrirmyndafyrirtæki VR 2020
Johan Rönning hefur hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2020 fyrir árangur sinn í vinnumarkaðskönnun VR.
Fyrirtækjum í könnun VR er skipt í þrjá flokka eftir stærð og hlaut Johan Rönning nafnbótina í flokki fyrirtækja þar sem starfsmenn eru sjötíu eða fleiri. Fyrirtækið lagði könnuna fram fyrir alla starfsmenn og er svarhlutfall könnunarinnar með því hæsta sem barst inn.
Þetta er í tíunda sinn sem Johan Rönning hlýtur þessa heiðruðu nafnbót sem starfsmenn eru mjög stoltir af og munu áfram vinna að því að gera fyrirmyndarfyrirtækið okkar enn betra.
|