APRÍL 2018

JOHAN RÖNNING Á LIGHT & BUILDING Í FRANKFURT

Í liðnum mánuði hélt mikill fjöldi rafiðnaðarmanna til Þýskalands, nánar tiltekið til Frankfurt á sýninguna Light & Building. Á sýningunni, sem haldin er annað hvert ár, keppast framleiðendur við að kynna áhugaverðar nýjungar sem munu verða ráðandi á næstu árum. Þráðlausar lausnir, ýmiss konar öpp og áframhaldandi þróun ljóstvista var áberandi. Á næstu vikum og mánuðum munum við kynna þessar nýjungar fyrir viðskiptavini. Þriðjudaginn 20. mars bauð Johan Rönning öllum íslensku gestunum í eplavínkynningu og kvöldverð í nágrenni Frankfurt. Eftir matinn hélt hljómsveitin Edelrausch uppi fjöri fram á nótt. Yfir hundrað manns þáðu boðið og skemmtu sér vel. Við hjá Johan Rönning þökkum öllum þeim sem komu kærlega fyrir samveruna.

Smelltu á myndina til að upplifa fjörið.

NÝTT Í VERSLUNUM OKKAR FRÁ MEGGER

Bjóðum nú handhæga 1000V einangrunarviðnámsmæla frá Megger og eru fyrstu eintökin komin í hús.
 

Þessir mælar bjóða upp á gríðarlega mikla nákvæmni og ýmsa mælieignleika svo sem PI og DAR sem hafa áður einungis þekkst á stærri og dýrari mælum.

Mælarnir eru afgreiddir í hörðum töskum og er einnig mögulegt að fá þá með bluetooth tengingu og minni til að flytja mælingar beint í tölvu. 

Að auki er í boði að fá mælana með fjarstýringu á próbunum svo ekki þarf að þrýsta á test-hnapp á mælinum.


Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar eða á síðu Megger.








 

STILLINGAR VEFAÐGANGS

Nú eru fjórar gerðir vefaðgangs í boði með mismunandi virkni á vefnum. Allt eftir því hvaða leið hentar.
1. Fullur aðgangur, með þessari tengingu sér notandi afsláttarverð viðkomandi fyrirtækis, sér birgðastöðu á vörum í verslunum Johan Rönning, getur gert pantanir á vörum í vefverslun og getur sér reikninga og aðrar viðskiptafærslur.
2. Takmarkaður aðgangur, með þessari tengingu getur viðkomandi gert pantanir á vörum í vefverslun en sér ekki afsláttarverð viðkomandi fyrirtækis og hefur ekki aðgang að reikningum eða öðrum viðskiptafærslum.
3. Eingöngu vefverslun,  með þessari tengingu sér notandi afsláttarverð viðkomandi fyrirtækis, sér birgðastöðu á vörum í verslunum Johan Rönning og getur gert pantanir á vörum í vefverslun en hefur ekki aðgang að reikningum eða öðrum viðskiptafærslum.
4. Eingöngu reikningar, með þessari tengingu fær viðkomandi aðgang að reikningasíðu en ekki vörum eða öðrum hlutum vefsíðunar.

ER VIÐSKIPTAVINUR ÞINN VARINN YFIRSPENNU?

Með breyttu veðurfari hefur tjón af völdum eldinga aukist. Heimilistæki og stýringar í iðnaði eru búinn rafeindastýringum sem þola illa ef spennuhækkun verður á veitukerfinu. Með réttum búnaði er einfalt að koma í veg fyrir að spennupúlsar fari inn í hús eða inn á tæki.

Við bjóðum lausnir frá Phoenix Contact sem einfalt er að koma fyrir. Nánari upplýsingar er að finna hér:




NÝR YFIRLITS BÆKLINGUR FRÁ BERKER Á ÍSLENSKU

Út er kominn yfirlits bæklingur fyrir allar rofalínur Berker. Hann er ætlaður rafverktökum og rafvirkjum til að afhenda viðskiptavinum svo þeir geti séð útlit og liti rofa og tengla frá Berker. Bæklingurinn er að sjálfsögðu einnig aðgengilegur á heimasíðu okkar og má nálgast hann með því að smella á myndina hér fyrir neðan.


 

DREGIÐ Í LEIK VEGNA VIÐSKIPTA Í VEFVERSLUN RONNING.IS

Allir viðskiptavinir Johan Rönning sem versla í vefverslun okkar í febrúar og mars áttu möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Það eina sem þurfti að gera var að versla í vefverslun okkar. Í boði voru sett með hersluvél og borvél. Í febrúar var það TG RAF í Grindavík sem hreppti hnossið. Í mars var það aftur á móti Þingvangur. Við hjá Johan Rönning óskum þeim til hamingju með vinninginn sem mun án efa nýtast vel.

Tómas, Alexander og Arinbjörn hjá TG Raf eru kátir með verkfærin.

REIKNINGAR Á RONNING.IS

Á síðastliðum vikum höfum við betrumbætt vefinn okkar www.ronning.is  talsvert og eru komnar nokkrar áhugaverðar viðbætur sem vert er að kynna. Stóraukinn hraði á vefnum. Nú tekur nánast enga stund að setja vörur í körfu til að versla. Ný vöruflokkavalmynd með myndum sem eykur talsvert á þægindin við að vafra um vörutré okkar. Yfirlit yfir reikninga viðskiptavina er aðgengilegt á vefnum og má skoða á meðfylgjandi myndbandi.


 

EFNISHANDBÓK VERKEFNIS

Nú má safna vörum í óskalista og á þeirri síðu er hægt að gera efnishandbók með þeim vörum sem notandinn hefur sett á listann. Hægt er að velja sína eigin forsíðumynd, til dæmis mynd af húsbyggingu verkefnis, sinn eigin titil og merkja efnishandbókina með merki fyrirtækis. Mögulegt er að setja vörur á óskalista með þar til gerðun hnappi á vörusíðu og er svo má nálgast óskalistasíðu sína hér. Kennslumyndband má nálgast með því að smella á myndina.

 

SÍUR Á VÖRUFLOKKUM EINFALDA LEIT

Þegar vafrað er um síður ronning.is má einfalda leit með því að nýta sér síur í vöruflokkum. Það styttir leitartíma og gerir verslun á vefnum mun hraðvirkari. Nánari upplýsingar er að finna á myndbandi hér fyrir neðan:


HRAÐPÖNTUN Á VEFNUM

Nú er mögulegt að hlaða upp Excel skrá með vörunúmerum til að setja margar vörur í körfuna á svipstundu, skráin þarf einungis að innihalda vörunúmer og magn þess sem panta skal. Nánari upplýsingar, leiðbeiningar og Excel skjal til sýnis má finna hér.
Kennslumyndband má skoða með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Umsjón: Óskar Davíð Gústavsson, oskar@ronning.is
 
Copyright © 2018 Johan Rönning, All rights reserved.