Sérðu ekki myndirnar? Skoðaðu póstinn hér.

ÁGÚST 2017

HLEÐSLUSTÖÐ FYRIR RAFBÍLA VIÐ KLETTAGARÐA

Sett hefur verið upp hleðslustöð fyrir rafbíla við verslun okkar í Klettagörðum. Stöðin sem er tvöföld 22 kW stöð frá Schneider Electric er ætluð viðskiptavinum Johan Rönning sem komnir eru á rafbíl. Þessi gerð hleðslustöðva hentar sérlega vel fyrir fyrirtæki sem vilja bjóða viðskiptavinum og eða starfsfólki upp á hleðslu fyrir rafbíla. Hún hefur inn byggðan RFID-kortalesara og getur því lesið flestar gerðir slíkra korta. Stöðin er sú fyrsta sem sett er upp við verslanir Johan Rönning en ekki sú síðasta. 



Upplýsingar um hleðslustöðvar má finna með því að smella á myndina.

VINNA VIÐ STÆKKUN Á AKUREYRI HAFIN

Búið er að taka grunn að stækkun verslunar Johan Rönning á Akureyri. Viðbyggingin sem verður tæpir 500 fermetrar að stærð verður kærkomin viðbót við útibúið sem fyrir löngu hefur sprengt utan af sér núverandi húsnæði. Áætlað er að viðbyggingin verði komin í notkun öðru hvoru megin við áramót. 






 

ENDAHULSUTÖNG 0,5-16q

Flexi Crimp Pro endahulsutöng frá Cimco. Hún er framhlaðin fyrir endahulsur af stærð frá 0,5 til 16 mm². Nett og sterk töng sem auðvelt er að vinna með. Núna í ágúst verður þessi frábæra töng á sérstöku kynningarverði. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar.


Vörunúmer:    Verð:
101945             8.499 án vsk




SKINNUSTOKKAR TIL AFLDREIFINGAR

Bjóðum mikið úrval skinnustokka til afldreifingar. Stokkarnir eru í boði frá 50 - 6300 Amper. Bjóðum einnig stokka sem henta vel í framleiðslusali eða verkstæði sem fæðing að hreyfanlegum tækjum. Þeir stokkar eru í húsi úr plastefni sem mögulegt er að beygja framhjá hlutum sem fyrir eru í byggingunni. Kynntu þér málið hjá sölumönnum okkar.


 

KASTARAR Í BRAUTIR

Bjóðum LED kastarar í 3-fasa brautir á frábæru verði. Þeir eru 30 wött og koma í svörtum eða hvítum lit með mattri áferð. Kastararnir hafa 30 gráðu geisla sem er útskiptanlegur fyrir 15/45/60°spegla sem eru til á lager. Líftími er 50.000 klst (L70)
Ljósstreymi: 3000lm í 3000K
                     3100lm í 4000K
Vörunúmer:
SLC8601    LED kastari 830 hvítur    
SLC8602    LED kastari 830 svartur
SLC8603    LED kastari 840 hvítur
SLC8604    LED kastari 840 svartur

BOX FYRIR LED-LJÓS Í LOFTAKLÆÐNINGU

Johan Rönning býður nýja gerð boxa sem kallast ThermoXLED. Þau eru sérstaklega gerð fyrir innfelld LED-ljós sem setja á í klæðningu. Ekki er þörf á sérstökum frágangi fyrir ofan boxin vegna hita sem kemur frá ljósunum. Tvær stærðir eru í boði. Fyrir 74 mm gat og einnig 86 mm. Boxin festast í loftaklæðninguna þegar þeim er þrýst upp í gatið. Ekki er þörf á frekari festingu.

Vörunúmer:  Skýringar:
9320-10          74 mm, hámark 6,6 W
                      dýpt á boxi er 70 mm

Vörunúmer:  Skýringar:
9320-21          86 mm, hámark 10 W
                      dýpt á boxi er 90 mm


DÓSIR OG BOX FYRIR SJÓNSTEYPU

Johan Rönning býður margar áhugaverðar lausnir frá Kaiser þegar setja á rafbúnað í sjónsteypu. Má þar nefna rofadósir í tveimur dýptum, 58 og 82 mm. Einnig bjóðum við tvöfaldar rofadósir og loftadósir fyrir sjónsteypu.  Kaiser framleiðir þar að auki sérstaka botna fyrir HaloX-O boxin fyrir innfelld ljós í sjónsteypu. Með þeim má setja ýmsar stærðir af ljósum með lítilli útbrún í veggi steypta með sjónsteypu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar, www.ronning.is.


LED-BORÐAR FRÁ BILTON

Höfum tekið á lager LED-borða og fylgihluti frá BILTON. Borðarnir eru í varnarflokki IP00 eða IP66. Þétti borðinn er húðaður með sérstakri aðferð svo hann er ekki klæddur með gúmmí hlíf. Borðinn hitnar því síður sem lengir líftíma hans. Eigum einnig mikið úrval prófíla fyrir borðana. Bilton hefur séð okkur fyrir sérhæfðum KNX-búnaði en nú bætum við LED-borðum í vöruúrvalið frá þeim. Þetta er vönduð vara, framleidd í Saalfelden í Austurríki. Upplýsingar af heimasíðu okkar um LED-borða má nálgast hér.






 

ÞÉTTINGAR MEÐ LÖGNUM Í GEGNUM RAKAVARNIR

Sérlega mikilvægt er að frágangur röra í gegnum rakavararlag sé vandaður til að koma í veg fyrir myglu. Gegnum tíðina hefur oft verið þétt með límbandi sem gefur sig á nokkrum árum. Við bjóðum upp á einfalda og ódýra lausn frá Kaiser sem allir ættu alltaf að nota. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu okkar.


 

BERKER QUICKLINK           NÚ ENN BETRI KOSTUR

Það eru komnir nýir QUICK LINK ljósdeyfar, rofa/þrýstirofaliðar og gluggatjaldaliðar í rofadósir fyrir þennan þráðlausa búnað. Þessir nýju liðar eru mun minni um sig heldur en eldri einingar og eru málin aðeins 40x40x18mm. Að auki hefur ljósdeyfirinn verið endurbættur og er nú ætlaður fyrir 230V ljósgjafa, 12V bæði rafeinda- og kjarnaspenna og 3-50 watta LED. Berker lækkaði einnig verðið á öllum liðunum. 
Með þessum nýju einingum er Quicklink orðinn enn betri kostur, bæði hvað varðar ummál og verð. 
Umsjón: Óskar Davíð Gústavsson, oskar@ronning.is
 
Copyright © 2017 Johan Rönning, All rights reserved.